Þriðjudagur, 30. júní 2009
Þriðjudagur til þrautar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 17. júní 2009
Nærri ár.
Einhvern veginn gleymdist þessi síða í öllu þessu netvafstri, eiginlega duttu bloggsíður úr tísku þegar facebookið tröllreið öllu. Núna má segja að ég sé komin með leið á facebookinu, veit aldrei hvað ég á að gera þar inni. Prófa að byrja að blogga aftur sé hvort það gangi. Anywho, gleðilega þjóðhátíð. Svo styttist í baunirnar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 7. júlí 2008
Aldrei lognmolla
Þá er þessari helgi lokið sem samanstóð af miklu puði og púli. Héraðsmót HHF var um helgina og eins og vanalega stóð mín fram á velli með skeiðklukku og tók tímann. Var svo heppin að fá frábærar manneskjur í sjoppuna þannig að ég gat verið á klukku. Keppti í boðhlaupi og það gekk betur en ég hélt. Einhver sagði að það væri greinilegt að ég hefði engu gleymt, þetta er enn til staðar (mont), lentum í öðru sæti og vorum að keppa í flokki 17 og eldri. Gaman af því að ég og Bryndís vorum að keppa saman. Aldrei hefði mér dottið í hug að það gæti gerst. Þetta var rosalegt við vorum svo góðar (mont).
Naga mig í handarbökin að hafa ekki skráð mig í fleiri greinar, en er ekki best að hætta á toppnum hehe.
Þess á milli þreif ég farfuglaheimilið og það var bara heilmikið að gera í því. Fór síðast á miðnætti til að taka á móti gestum, var reyndar sofnuð
en reif mig úr rúminu til bjargar óskipulögðum íslendingum, þeir reyndar eru það allir ekki satt? Já alltaf nóg að gera í sveitinni. Þá fer eldri dóttirin að keppa í fótbolta í dag, heppni að mótið er á Bíldudal. Þannig að öll fjölskyldan fer að horfa. Það dregur til tíðinda hjá fjölskyldunni því heimilisfaðirinn flytur heim í dag... jihú, vonandi alkominn í tvö ár.
Tók boot í morgun...
Sjáumst og skrifa svo í gestabókina hérna til vinstri.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 2. júlí 2008
Góðan daginn!
Já, já ég veit að lesendur bíða spenntir og óþreyjufullir eftir nýrri færslu. Hérna kemur hún...
Hálfbaunahelgin var frábær. Deildin var með kaffihús og mátti finna ilminn af vöfflum og kaffi um allan bæ. Það var mikil stemning í félagsheimilinu og hátíðin tókst í alla staði vel. Einhverjir hafa eflaust haldið að ég hefði verið grand á því að bjóða í málverk á málverkauppboðinu til þess að skreyta veggi Sæbakka 2 en því fer fjarri.
Ég var með umboð og þar með leiðrétti ég þann misskilning. Fórum aðeins út á laugardagskvöldið bara létt en það var svo gaman og við gleymdum okkur í gleðinni þannig að kvöldið dróst á langinn og við komum seinna heim en til stóð. Þvílík stemning. Á sunnudeginum reif ég mig upp til þess að undirbúa afmælið hennar Anítu sem tókst þetta vel. Vorum dauðuppgefin um kvöldið.
Er alltaf í bootinu og fer kl. 8 þrisvar í viku, hef aldrei svindlað sama hvernig líkamlega og andlega ástandið er. Þetta er bara að virka!
Kíkti inn á vef KHÍ og það er búið að breyta öllu. Notendanafnið, lykilorðið og netfangið sem ég er búin að hafa í átta ár er breytt. Núna stunda ég nám í HÍ - menntavísindasvið g netfangið mitt í skólanum er asg32@hi.is en ekki asdigud@khi.is sem var orðið hluti af manni. 
Jæja þvottavélin er að bíða eftir mér...verðum í bandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 19. júní 2008
"Garðyrkjufræðingur"
Hljóp á snærið hjá mér og fékk auka vinnuna sem mig vantaði.
Ég og Viktoría höfum keyrt inn í Trostansfjörð og hamast þar við að sinna garðyrkjustörfum í blíðunni. Þetta er náttúrulega bara snilld að eyða deginum í sveitinni, við erum lúnar eftir daginn sérstaklega á Boot Camp dögum. Er farin að hlaupa 1,5 km eins og ekkert sé.
Viktoría er í fótbolta alla daga fram eftir kvöldi svo ríf ég hana á lappir til þess að fara inn í fjörð þegar við höfum skutlað Anítu á leikskólann. Förum í sund á hverjum degi og reynum að njóta veðurblíðunnar enda ekki verið mikið að taka til og þrífa inni. Senn líður að afmæli baunaprinsessunnar, 29. júní sem er á sunnudeginum eftir hálfbaunina. Ætla að halda uppá afmælið þá enda hef ég endanlega sagt skilið
við Bakkus og engin ástæða til að vera þunn daginn eftir hálfbaun.
Ég vona að þið hafið það gott, góðar stundir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 16. júní 2008
Boot Camp
Já ég er byrjuð í Boot Camp, lét verða af því. Þetta er geggjað og erfitt. Er annars bara í sumarfríi og auðvitað sit ég ekki verkefnalaus þrátt fyrir að atvinnuauglýsingin hafi ekki skilað árangri. Fór að mála stofuna hjá mér og rífa út og breyta. Svo er ég að skipuleggja hálfbaunina ásamt fleira góðu fólki. Stefnir í mikið fjör. Minni sérstaklega á málverkasöluna sem fer fram til styrktar foreldrafélaginu í skólanum. Tækifæri til að ná sér í einstök listaverk eftir landsþekkta listamenn úr Arnarfirði.
Já, svo verður deildin með kaffihúsastemningu mmmm. Annars bara allt fínt að frétta, skruppum í bæinn í sólarhring og mín er komin í Og1, ég sem hef verið tryggur viðskiptavinur Símans fram að þessu. breytt netfang verður s.s. asdissnot@internet.is
Verðum í bandi....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 2. júní 2008
Heil og sæl
Já þá er sjómannadagshelgin búin og hún var alveg frábær. Fórum í grillveislu inn í Langabotn ásamt öðru frábæru fólki. Alger snilld. Á eftir að vinna um þrjá daga og þá er ég komin í sumarfrí. verður eitthvað rólegt hjá mér í sumar þannig að ef einhver veit um vinnu fyrir mig þá væri það vel þegið, hlutastarf. Annars var ég að fá meldingu um aðferðafræðina að hún byrjar 26. ágúst jihú
. Þannig er nú það.
Verðum í bandi...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 27. maí 2008
Sveitaferð
Ekkert jafnast á við sveitaferð á vorin. Fórum inn í Hvestu í dag og urðum vitni að því þegar ein kindin bar okkur til heiðurs. Aníta Sól naut sín í fjárhúsunum og var alveg óhrædd að vesenast í lömbunum.
Annars hefur lífið gengið sinn vana gang, skólaslit á fimmtudaginn og Valdi á leiðinni heim á morgun, jihú. Svo er sjómannahelgin framundan og eflaust verður eitthvað gert skemmtilegt í tilefni helgarinnar.
Aníta Sól æfir sig að hjóla á hverjum degi enda búin að fá nýtt hjól, bleikt með dúskum og körfu. Hún er bara ánægð með nýja hjólið en hvenær hún verður tilbúin að sleppa mömmu sinni er góð spurning. Jæja best að koma dömunum í rúmið . Yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 19. maí 2008
Vinn ekki!
Heilir og sælir kæru lesendur.
Hef verið að fara í gegnum póstinn minn sem ég geri reyndar á hverjum degi og það tekur dálítinn tíma. Ekki það að ég sé að fá einhver merkileg skilaboð, heldur verð ég að opna hitt og þetta til þess að athuga hvort ég hafi ekki unnið. Núið á hverjum degi í vinnunni og heima, vinn að vísu oft en allt einhverja gagnslausa vinninga. Vinninga eins og 1000 kr. afslátt í svæðanudd á nuddstofu í Hafnarfirði. 500 kr. afslátt af litun og plokkun ef þú kaupir húðhreinsun fyrir morðfjár
og þar fram eftir götunum. Þá er það sumardvalarpósturinn með allskyns gylliboð um að fara til útlanda næstum því gefins. Skráði mig í þetta einhvern tíma þegar þú gast unnið með því að skrá þig á póstlista. Svo er það Bónus póstlistinn og póstlistinn hjá Forlaginu (sem reyndar ágætur, en ég vinn aldrei), póstlistinn hjá slysavarnarkonum í Reykjavík (sem er reyndar ágætt til að fylgjast með). Er ekki kominn tími til að afskrá sig af þessum listum öllum. Hætta að bíða eftir að vinna utanlandsferðina. Vitið þið um einhvern sem hefur unnið utanlandsferð með því að vera á póstlista hjá einhverju fyrirtæki. Þetta er efni í rannsókn fyrir Kompás. Svo velti ég því fyrir mér að ég vinn pottþétt ekki ef ég er ekki skráð. En þetta er sjálfsagt allt svindl. Maður spyr sig!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 15. maí 2008
Átak
Já nú er ég í átaki og þeir sem þekkja mig vita að það er ekki í fyrsta skipti.
Er að hörba ennþá til þess að fá orku en stunda einnig stafgöngu á hverjum degi, enn sem komið er. Geng venjulega hlíðina til móts við Bíldudal, fuglalífið er yndislegt. Það voru þrjú Tjaldahreiður í vegkantinum, búið að éta úr þeim öllum, þetta er harður heimur. Mér samt blöskrar hversu miklu rusli er hent út um bílgluggann. Áskorun á þá sem henda rusli út um gluggann að hafa lítinn ruslapoka í bílnum og henda í hann. Þetta er argasti sóðaskapur og hananú! Ekki vera sóði!
Var annars á tónleikum hjá tónskólanum og Viktoría Líf var að spila ásamt hinum nemendunum, upprennandi snillingar. Frábærir tónleikar.
Lítur út fyrir mikla grillhelgi...hmmm það þýðir enn meiri ganga...gleymdi að minnast á það ef einhver vill slást í stafgöngu"hópinn", velkomin.
Yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggvinir
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar!
- Grunnskóli Vesturbyggdar Kíkið á bekkir og þar inn á Bíld. yngsta stig.
- Arnfirðingur Síða Arnfirðinga félagsins.
- Tíðis Fréttavefur Fréttir af patreksfirði og fl.
- Bíldudalur Áhugavert efni á Bíldudal .
Námsvefir.
Hérna er hægt að sjá ýmsa námsvefi.
- Námsgagnasgagnastofnun Mikið af gagnvirkum vefum fyrir börn og unglinga.
- Skólavefurinn. Ágætt efni en þarf að vísu að vera áskrifandi.
Bloggarar
- Guðrún og Svavar Lífið í Skotlandi
- Ragna Berglind
- Alda Hlín Lífið í Saudi Arabíu.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 4516
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


María Ragnarsdóttir